60+ ferð til Benidorm. 22. september 2026 í 16,21 eða 28 nætur
Kristín Tyggvadóttir
60+ ferð til Benidorm. 22. september 2026 í 16,21 eða 28 nætur
Fararstjóri
Kristín Tyggvadóttir
FINNA FERÐ

60+ ferð með Kristínu Tryggva til Benidorm er alltaf jafn vinsæl, að þessu sinni förum við 22. september og dveljum í 14, 21 eða 28 nætur.

Hótelið Primavera Park stendur í nálægð við gamla bæ Benidorm sem er alltaf jafn heillandi og huggulegur. Gist verður í Premium svítum sem eru rúmgóðar og fallega hannaðar í björtum litum. Einnig verður hægt að fá Deluxe herbergi

Fararstjóri KRISTÍN TRYGGVADÓTTIR

Kristín Tyggvadóttir

Kristín Tyggvadóttir er þaulvanur fararstjóri og einkar vinsæl. Kristín hóf störf hjá íslenskri ferðaskrifstofu vorið 1998 sem fararstjóri erlendis. Kristín hefur unnið við fararstjórn á Spáni og Kanaríeyjum allt árið um kring s.l. 24 ár og einnig farið í sérferðir til Grikklands, Tyrklands, Lettlands, Búdapest, Slóveníu, Kúbu o.fl. staða. Ferðalög eru eitt af aðal áhugamálum Kristínar ásamt útiveru og samverustundum með góðu fólki. Kristín hefur starfað fyrir Aventura síðan 2021.

Verð í tvíbýli í 14 nætur 309.900 kr á mann
Verð í einbýli í 14 nætur 374.900 kr
14 nætur
Verð í tvíbýli í 21 nótt 379.900 kr á mann
Verð í einbýli í 21 nótt 469.900 kr
21 nótt
Verð í tvíbýli í 28 nætur 429.900 kr á mann
Verð í einbýli í 28 nætur 554.900 kr
28 nætur
Innifalið
 Flug, 20 kg innrituð taska
 Gisting á 4 stjörnu hótelinu Primavera Park með hálfu fæði og drykkjum með kvöldverði
 Fararstjórn í höndum okkar einstöku Kristínar Tryggvadóttir
 Rútur til og frá flugvelli
 Frábær dagskrá
Annað
 Staðfestingargjald er 50.000 kr á mann og er óendurkræft.
 Lágmarksþátttaka er 20 manns og áskilur ferðaskrifstofan sér rétt til að fella ferð niður náist ekki næg þátttaka
 Ekki innifalið: Sameiginlegir kvöldverðir og annað sem ekki er talið upp hér fyrir ofan.
 Bingó, Félagsvist, minigolf, gönguferðir, skoðunarferðir í næstu þorp og bæi

Primavera Park Hotel

Dvalið verður á glæsilegu 4 stjörnu hóteli, Primavera Park, sem er opnaði eftir algera endurnýjun í júní 2022. Hótelið stendur í nálægð við gamla bæ Benidorm sem er alltaf jafn heillandi og huggulegur.

Hotel Primavera Park er staðsett frábærum stað á Benidorm, 700 metrum frá Levante ströndinni og örstutt frá gamla bænum. Hótelið er nýlega endurnýjað. Á hótelinu eru 206 herbergi á 17 hæðum hótelsins, á þaki hótelsins er skemmtilegur bar, Oasis bar og infinity sundlaug með einstöku útsýni yfir Benidorm en þaksvæðið er einungis fyrir fullorðna.

Kvöldskemmtun í sundlaugargarði hótelsins.

Gestir í ferðinni verða allir í jr svítu sem er hugguleg og rúmgóð herbergi. Nóg pláss er í 30 fermetra herberginu og er hægt að tylla sér í sófa við sófaborð. Hálft fæði með víni og vatni.

Þetta er frábær kostur þar sem allt er nýtt og huggulegt. Hótelið hefur rólegt og þægilegt andrúmsloft og er einstaklega sjarmerandi og kósí. Glæsilegur gistikostur þar sem mun fara einstaklega vel um okkar farþega, seinniparts sól á svölum og fyrir þá sem lenda á efri hæðum hótelsins, fallegt útsýni yfir Miðjarðarhafið.