60+ til Benidorm
60+ ferð með Kristínu Tryggva til Benidorm er alltaf jafn vinsæl, að þessu sinni förum við 22. september og dveljum í 14, 21 eða 28 nætur.
Hótelið Primavera Park stendur í nálægð við gamla bæ Benidorm sem er alltaf jafn heillandi og huggulegur. Gist verður í Premium svítum sem eru rúmgóðar og fallega hannaðar í björtum litum. Einnig verður hægt að fá Deluxe herbergi
Fararstjóri KRISTÍN TRYGGVADÓTTIR
Kristín Tyggvadóttir er þaulvanur fararstjóri og einkar vinsæl. Kristín hóf störf hjá íslenskri ferðaskrifstofu vorið 1998 sem fararstjóri erlendis. Kristín hefur unnið við fararstjórn á Spáni og Kanaríeyjum allt árið um kring s.l. 24 ár og einnig farið í sérferðir til Grikklands, Tyrklands, Lettlands, Búdapest, Slóveníu, Kúbu o.fl. staða. Ferðalög eru eitt af aðal áhugamálum Kristínar ásamt útiveru og samverustundum með góðu fólki. Kristín hefur starfað fyrir Aventura síðan 2021.
Primavera Park Hotel
Dvalið verður á glæsilegu 4 stjörnu hóteli, Primavera Park, sem er opnaði eftir algera endurnýjun í júní 2022. Hótelið stendur í nálægð við gamla bæ Benidorm sem er alltaf jafn heillandi og huggulegur.
Hotel Primavera Park er staðsett frábærum stað á Benidorm, 700 metrum frá Levante ströndinni og örstutt frá gamla bænum. Hótelið er nýlega endurnýjað. Á hótelinu eru 206 herbergi á 17 hæðum hótelsins, á þaki hótelsins er skemmtilegur bar, Oasis bar og infinity sundlaug með einstöku útsýni yfir Benidorm en þaksvæðið er einungis fyrir fullorðna.
Kvöldskemmtun í sundlaugargarði hótelsins.
Gestir í ferðinni verða allir í jr svítu sem er hugguleg og rúmgóð herbergi. Nóg pláss er í 30 fermetra herberginu og er hægt að tylla sér í sófa við sófaborð. Hálft fæði með víni og vatni.
Þetta er frábær kostur þar sem allt er nýtt og huggulegt. Hótelið hefur rólegt og þægilegt andrúmsloft og er einstaklega sjarmerandi og kósí. Glæsilegur gistikostur þar sem mun fara einstaklega vel um okkar farþega, seinniparts sól á svölum og fyrir þá sem lenda á efri hæðum hótelsins, fallegt útsýni yfir Miðjarðarhafið.





